Þegar kalt er úti er fátt yndislegra en þykkir og hlýir ullarsokkar. Dvergasokkagarnið hefur algjörlega sannað sig og er mjög vinsælt í endingargóða sokka. Eingöngu ull og ekkert plast til að styrkja, heldur aðferðin við vinnsluna sem gefur styrkinn.
Á nýju ári kemur fínna sokkagarn frá okkur sem mun heita huldusokkar og er jafnþykkt og huldubandið. Það verður spennandi að heyra hvernig fólki líkar við það. ????????????