Ég býð upp á persónulega þjónustu þegar kemur að vali á garni. Ef þú ert með ákveðna uppskrift í huga getur þú sent hana til mín og ég finn rétta garnið fyrir þig. Ég er líka með ýmsa fylgihluti til sölu t.d. prjóna, tölur unnar af handverksfólki og tróð. Sendu mér endilega línu og við finnum saman eitthvað flott fyrir þig 🙂